Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 368/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 368/2023

Fimmtudaginn 19. október 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 27. júlí 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. maí 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 22. september 2022 og var umsóknin samþykkt 4. október 2022. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. maí 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki mætt á boðað námskeið.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. júlí 2023. Með bréfi, dags. 10. ágúst 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 11. september 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. september 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að misskilningur á upplýsingagjöf hafi valdið því að Vinnumálastofnun neiti honum um atvinnuleysisbætur í tvo mánuði. Kærandi hafi verið grunlaus um að hann ætti bréf á Mínum síðum hjá Vinnumálastofnun þar til 11. júlí 2023 þegar hann hafi fengið skjáskot af bréfi frá Skagaströnd í svarpósti frá Vinnumálastofnun Vesturlands. Samskipti kæranda hafi verið við Vinnumálastofnun á Vesturlandi. Líkt og meðfylgjandi samskipti sýni hafi kærandi ekki séð bréfin frá Skagaströnd.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 22. september 2022. Með erindi, dags. 4. október 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Með umsókn kæranda hafi fylgt læknisvottorð, útgefið 28. ágúst 2022, þar sem fram komi að kærandi búi við slitgigt í höndum og væga lófakreppu. Slíkt takmarkaði getu hans til að vinna með verkfæri og álagstengd störf fyrir hendur.

Þann 30. mars 2023 hafi kærandi verið boðaður á námskeiðið ,,Í leit að nýju starfi”. Námskeiðið hafi verið haldið í sex skipti á tímabilinu 11. apríl til 21. apríl 2023. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið send á ,,Mínar síður” kæranda, með tilkynningu í farsíma og á uppgefið netfang hans. Boðun á námskeið hafi einnig verið ítrekuð þann 4. apríl 2023. Þann 5. apríl 2023 hafi ráðgjafi reynt að hafa samband við kæranda  til að minna á fyrrnefnt námskeið. Símtölum frá stofnuninni hafi ekki verið svarað. Þann 11. apríl 2023 hafi áminning verið send á kæranda þar sem hann hafði ekki mætt á fyrsta dag námskeiðsins. Kæranda hafi verið tjáð að næsti tími væri þann 12. apríl 2023 og áréttað að mikilvægt væri að tilkynna forföll.

Að loknu umræddu námskeiði hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar frá námskeiðshaldara að kærandi hefði ekkert mætt á námskeiðið. Þá höfðu engin forföll verið boðuð til Vinnumálastofnunar. Með erindi, dags. 5. maí 2023, hafi kæranda verið boðið að skila stofnuninni skriflegum skýringum á ástæðum þess að hann hefði ekki mætt á umrætt námskeið. Áréttað hafi verið að ef hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 14. maí 2023 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt á boðað námskeið. Kærandi hafi greint frá því að samkvæmt læknisráði skyldi hann reyna vinnumarkaðsúrræði áður en til örorkumats kæmi. Kærandi hafi fylgst með þeim störfum sem í boði væru en hann væri þó ekki að sækja um störf sem hann gæti ekki sinnt. Hann hafi verið í 47 ár á vinnumarkaði og rekið farsælt fyrirtæki í 35 ár. Reynsla hans af vinumarkaði væri því eitthvað sem fáir fyrirlesarar byggju yfir. Þá hafi kærandi greint frá því að hann teldi sig ekki á leið á vinnumarkað sökum slitgigtar sinnar. Kærandi hafi óskað ráðlegginga vegna stöðu sinnar og upplýsinga um hvenær vinnumarkaðsúrræði á vegum stofnunarinnar teldust fullreynd. Kæranda hafi verið svarað af hálfu ráðgjafa Vinnumálastofnunar og honum greint frá því að tekið væri tillit til hans stöðu er varði miðlun í störf, enda lægi fyrir læknisvottorð vegna slitgigtar hans. Kæranda hafi verið tilkynnt að þrátt fyrir skerta starfsgetu væri atvinnuleitendum skylt að vera í virkri atvinnuleit og mæta á boðuð námskeið og önnur þau úrræði sem stofnunin boði þá til. Ráðgjafi stofnunarinnar hafi ráðlagt kæranda að leita annarra úrræða í samráði við heimilislækni ef hann teldi sig ekki eiga afturkvæmt á vinnumarkað.

Með erindi, dags 17. maí 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta væri felldur niður í tvo mánuði sökum þess að hafa ekki mætt á umrætt námskeið. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hafi sent ráðgjafa Vinnumálastofnunar erindi í formi tölvupósts 14. maí 2023 þess efnis að hann væri ekki á leið vinnumarkað með vísan til þess að hann væri með slitgigt í höndum. Því hafi vaknað grunur af hálfu Vinnumálastofnunar um að kærandi væri ekki í virkri atvinnuleit í skilningi laga nr. 54/2006. Umsókn kæranda hafi því verið frestað með bréfi, dags. 17. maí 2023, og óskað eftir skriflegum skýringum kæranda. Skriflegar skýringar hafi borist Vinnumálastofnun þann 23. maí 2023. Með ákvörðun, dags. 30. maí 2023, hafi verið fallist á með kæranda að hann teldist vera í virkri atvinnuleit þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar þess efnis að hann teldi ekki líklegt að hann væri á leið á vinnumarkað á komandi misserum.

Þann 5. júlí 2023 hafi Vinnumálastofnun borist beiðni frá kæranda um endurskoðun á ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 17. maí 2023. Erindi kæranda hafi verið efnislega það sama og áður hafi komið fram af hálfu kæranda. Auk þess hafi verið farið fram á skriflegan rökstuðning á ákvörðuninni. Beiðni um rökstuðning hafi verið hafnað með erindi, dags. 10. júlí 2023, með vísan til 3. mgr. 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 þar sem 14 daga frestur til að óska eftir rökstuðningi á ákvörðun hafi verið liðinn. Vinnumálastofnun hafi láðst að tilkynna kæranda með formlegum hætti að mál hans hefði verið tekið til endurskoðunar á grunni 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. 

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Í 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um almenn skilyrði fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta til launamanna. Í a. lið 1. mgr. 13. gr. sé kveðið á um það skilyrði að atvinnuleitandi skuli vera í virkri atvinnuleit. Samkvæmt h. lið 1. mgr. 14. gr. laganna felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir sé kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Þá beri atvinnuleitendum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði.

Fyrir liggi að kærandi hafi hvorki mætt á boðað námskeið, sem hafi verið haldið í sex skipti á tímabilinu 11. apríl til 21. apríl 2023, né boðað forföll. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á ,,Mínum síðum“ á vef Vinnumálastofnunar, vmst.is, um tímasetningu og staðsetningu. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Boðun til umrædds námskeiðs hafi tvívegis verið áréttuð fyrir kæranda. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi meðal annars að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á umrætt námskeið en þær virðist lúta að því að hann telji vinnumarkaðsúrræði á vegum stofnunarinnar fullreynd. Að mati Vinnumálastofnunar geti skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Ljóst sé að rík skylda hvíli á þeim er þiggi atvinnuleysisbætur til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Það komi í hlut stofnunarinnar að skipuleggja vinnumarkaðsúrræði og atvinnuleitendur hafi ekki forræði á því hvort þeir sinni þeim úrræðum. Atvinnuleitendum beri skylda til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og leita leiða til að auka líkur sínar á að finna starf, sbr. 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Þá sé á meðal almennra skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta til launamanna að þeir séu í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í virkri atvinnuleit felist að viðkomandi atvinnuleitandi hafi vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem honum standi til boða, sbr. h. lið 1. mgr. 14. gr. sömu laga.

Þá vísi Vinnumálastofnun jafnframt til þess að atvinnuleitendum beri, samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr. sömu greinar, þar á meðal um tilfallandi veikindi og fjarveru á boðaðan fund, án ástæðulausrar tafar. Kærandi hafi hvorki afboðað sig á boðað námskeið né tilkynnt forföll. Ljóst sé af ákvæði 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir að atvinnuleitandi beri tilkynningarskyldu gagnvart Vinnumálastofnun.

Með vísan til alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sér það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa ekki mætt á umrætt námskeið hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Honum beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 30. mars 2023 tilkynnt að hann væri boðaður á námskeiðið „Í leit að nýju starfi“ sem yrði haldið í sex skipti á tímabilinu 11. til 21. apríl 2023. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var kæranda greint frá því að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi var minntur á boðað námskeið þann 4. og 11. apríl 2023.

Kærandi mætti ekki á námskeiðið og gaf þær skýringar hjá Vinnumálastofnun að hann hafi metið það svo að það ætti ekki við í hans tilfelli þar sem reynsla kæranda af vinnumarkaði og atvinnurekstri væri meiri en almennt gerist. Líklega meiri reynsla en sjálfur námskeiðshaldarinn hefði.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í vinnumarkaðsúrræði sem honum var gert að sækja. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. maí 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum